Blogg

17.4.2008

Good dey

Jæja þá ætla ég loksins að skrifa eitthvað hehe.

Stórar fréttir! Ásta Kristín er byrjuð að skríða! Hún er svo dugleg. Hún notar sína eigin tækni soldið í skríðinu, svona með hnjánum og tánum og þannig en hei það virkar
Við fórum í ungbarnaskoðun um daginn og þá var hún orðin 8,2 kíló og 71 cm. Rosa fín. Átti reyndar að þyngjast aðeins meira, þannig að mamman er að reyna að troða mat í barnið daginn út og inn, sem gegngur svona upp og ofan.

Svo eitt fyndið sem gerðist um daginn, við fórum í heimsókn upp í bústað til pabba um páskana, hann átti nebbla afmæli kallinn. Nei bústaðurinn er upp á fjalli og það er fjallavegur að honum sem var ófær vegna þess að hann var bara þakin 2 metra lagi af snjó, þannig að þegar við gátum ekki keyrt lengra kom pabbi og náði í okkur á fjörhjólinu sínu og ferjaði okkur upp í bústað, sem var alveg slatta löng leið. Pabbi og Ari voru á hjólinu og Ásta Kristín á milli þeirra og síðan vorum ég Þóra og Ömmi á lítilli kerru aftan í, mjög fyndið. Taka það fram að Þóra er ólétt. Þannig að pabbi var að flytja 5 manns og þar á meðal eitt ungabarn og ólétta konu. Svakalegt. Mér stóð nú ekki á sama á tímabili. En allt gekk vel. Svo þegar við vorum að fara til baka þá sat ásta kristín á milli mín og pabba og ari var framan á hjólinu. Þóra og ömmi löbbuðu bara að stað og pabbi náði svo í þau eftir okkur. Ég var eitthvað voða að hafa áhyggjur hvort ástu liði ekki vel og hvort hún gæti andað, hvort henni væri kalt hrædd, bara what ever, byrjaði meira að segja að syngja fyrir hana hehe. Herðu neinei heldur betur óþarfa áhyggjur því barnið sofnaði!! Henni leið svo vel í öllum hristingnum að hún bara steinrotaðist! 
Yndislegt barn ;)
Herðu svo vorum við að komast að því í dag að hún er komin með pláss á leikskóla á stúdentagörðunum, byrjar í maí. Hugsa sér. Það er frábært.

En setti inn nokkrar myndir og líka eitt myndband af ástu að skríða en það tekur víst einhvern tíma að downloada því, bara svo þið vitið það.

En takk fyrir í dag og bless í bili
Kv Kata

Skrifað 17.4.2008 kl. 21:09 af Katrín

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 3
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 1
Gestir í gær: 1
Samtals flettingar: 4814
Samtals gestir: 2069
Tölur uppfærðar: 20.3.2010 08:45:12