Blogg

20.10.2008

Hellúúú

Jæja hvað segiði í dag? Við segjum gott. Ásta Kristín er ennþá svakalega dugleg en er farin að sýna smá vott af frekju. En það er bara gott að vita hvað maður vill! ;) eða stundum, ekki þegar maður liggjur öskrandi af frekju á gólfinu í 10 mín..... eða hvað?

Svo er hún nottla svo gáfuð að hún er farin að segja Ásta eða "atta". Bendir á mynd af sér og segir atta og svo bendir hún stundum á sig og segir atta. Hún er farin að geta klifrað ein upp í tripp trapp stólinn sinn og setjast oní hann!! Ótrúlegt að fylgjast með því. Og já hún er náttúrulega farin að klifra upp á allt. Borð stóla hillur you name it! Svo er hún nýbyrjuð að hoppa, maður þarf reyndar að halda í hendurnar á henni og hún hoppar alvega svaka hátt :)

Ásta var orðin 80 cm og 10 kíló í 1 árs skoðun, hún var tveim staðalfrávikum yfir í hæð og eitthvaða svipað í þyngd líka :) Enda svakalega dugleg að borða.

Þannig að það er allt gott að frétta af okkur hér í kreppunni, við töpuðum engum peningum enda áttum við enga fyrir þannig að lítið hægt að tapa hehe. Maður finnur bara mest fyrir hversu matarverðið er orðið hátt. Alveg svakalegt að versla í matinn núna, og það á ekki eftir að fara niður. Þetta verð er komið til að vera.
 
En við lítum bara á björtu hliðarnar og höfum gaman af lífinu :)
Hafið það gott

Katrín

P.s endilega commenta og ég setti in myndir af Ástu Kristínu og úr afmælinu mínu

Skrifað 20.10.2008 kl. 10:11 af Katrín

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 2
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 4
Gestir í gær: 1
Samtals flettingar: 4823
Samtals gestir: 2074
Tölur uppfærðar: 22.3.2010 06:29:32